Fundargerð fyrsta fundar Þjóðhagsráðs
Þjóðhagsráð kom saman til fyrsta fundar 8. júní sl. en hlutverk ráðsins er að greina stöðu efnahagsmála og ræða samhengi ríkisfjármála, peningastefnu og vinnumarkaðar í tengslum við helstu viðfangsefni hagstjórnar hverju sinni.
Í Þjóðhagsráði sitja forsætisráðherra, sem stýrir fundum ráðsins, fjármála- og efnahagsráðherra og forsvarsmenn Samtaka atvinnulífsins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Seðlabanka Íslands. Heildarsamtök launafólks sem aðild eiga að rammasamkomulaginu hverju sinni geta gerst aðilar að Þjóðhagsráði.
Í samkomulagi um hlutverk og umgjörð Þjóðhagsráðs segir að fundargerðir skuli birtast á heimasíðum aðila ráðsins.